Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi

Starri Reynisson, Ingunn Rós Kristjánsdóttir, Bjarney Bjarnadóttir, Guðmundur Gunnarsson, Norðvesturkjördæmi

Viðreisn kynnir nú framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fara fram þann 25. september.

Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, leiðir listann. Í 2. sæti er Bjarney Bjarnadóttir, kennari.

Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, situr í 3. sæti listans og Ingunn Rós Kristjánsdóttir, sálfræðinemi, er í 4. sæti.

Guðmundur kveðst afar stoltur af því að leiða lista Viðreisnar í kjördæminu og hlakkar til kosningabaráttunnar næstu vikur og mánuði.

„Við teflum fram ungu og öflugu hugsjónafólki í bland við reynslubolta. Fólk sem hefur ástríðu fyrir svæðinu og íbúum þess. Við erum staðráðin í að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum og tala fyrir brýnum framfaramálum og tímabærum áherslubreytingum á þessu mest spennandi svæði landsins. Framtíðin er björt í Norðvesturkjördæmi og með þetta mannval mun Viðreisn sannarlega láta til sín taka. Við iðum í skinninu og munum verja næstu mánuðum í að ræða við okkar heimafólk, tala fyrir áherslumálum flokksins og hlusta. Þetta verður frábært kosningasumar,“ segir Guðmundur.

Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.

Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi:

1. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Bolungarvík
2. Bjarney Bjarnadóttir, kennari. Borgarnes
3. Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Akranes
4. Ingunn Rós Kristjánsdóttir, sálfræðinemi. Ísafjarðarbær
5. Egill Örn Rafnsson, tónlistarmaður og nemi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst. Bifröst
6. Edit Ómarsdóttir, verkefnastjóri Icelandic Startups. Akranes
7. Pétur Magnússon, húsasmiður. Ísafjarðarbær
8. Svandís Edda Halldórsdóttir, lögfræðingur. Akranes
9. Alexander Aron Guðjónsson, rafvirki. Akranes
10. Auður Helga Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Ísafjarðarbær
11. Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri. Stykkishólmur
12. Lee Ann Maginnis, kennari og lögfræðingur. Blönduós
13. Magnús Ólafs Hansson, húsgagnasmíðameistari. Akranes
14. Ragnheiður Jónasdóttir, forstöðumaður. Akranes
15. Pétur G. Markan, fyrrv. sveitarstjóri og formaður Vestfjarðastofu. Samskiptastjóri. Hafnarfjörður
16. Sigrún Camilla Halldórsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Ísafirði. Ísafjarðarbær