Dýrkeypt andvaraleysi

Ríkisstjórnin er í bullandi stórsókn á öllum sviðum ef marka má hennar eigin orð. Auðvitað er gott að ríkisstjórnin spilar sókn en hitt er verra að það hefur gleymst að kippa almenningi með í sóknina.

Tökum löggæslumálin sem dæmi. Nýleg bráðabirgðaskýrsla ríkislögreglustjóra sýnir gríðarlega fjölgun umferðarlagabrota síðastliðin ár. Þau voru um 70.000 árið 2017 samanborið við um 37.000 árið 2013. Það kemur okkur öllum við hvernig lögreglan er í stakk búin til að takast á við þær áskoranir sem fylgja þessari hættulegu þróun.

Annað dæmi. Tilkynningum um heimilisofbeldi heldur áfram að fjölda. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 402 slíkar tilkynningar fyrstu sjö mánuði þessa árs samanborið við 392 tilkynningar á sama tímabili í fyrra. Breytt verklag er ástæða þessarar miklu aukningar, en það hefur lítið upp á sig að vinna að aukinni umræðu í samfélaginu og hvetja fólk þannig til að tilkynna ofbeldi ef lögreglan hefur ekki bolmagn til að takast á við verkefnið. Þjóðinni allri kemur við hvernig farið er með þessi mál.

Þriðja dæmið. Starfsumhverfi lögreglunnar hefur verið töluvert í fréttum undanfarið þar sem m.a. hefur verið sagt frá því að þetta sé sú starfsstétt sem oftast lendi í vinnuslysum og að hótanir og ofbeldi gagnvart lögreglumönnum verði sífellt algengari og alvarlegri. Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, segir undirmönnun lögreglu í áraraðir, aukna vímuefnaneyslu og neyslu harðari efna vera stóra hluta skýringarinnar. Það er hagsmunamál þjóðarinnar að vinnuumhverfi lögreglumanna sé í lagi. Þegar litið er til þessara staðreynda er erfitt að sjá nokkurn sóknarbrag á því hvernig búið er að löggæslu hér á landi. Fjárveitingar til lögreglunnar eru í engu samræmi við það að verkefnum fjölgar og að áskoranir og úrlausnarefnin verða sífellt fjölbreyttari, jafnvel alvarlegri. Í gær greindi Birgir Örn Guðjónsson lögreglumaður frá því að lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hefðu verið upplýstir um að vegna slæmrar fjárhagsstöðu embættisins þyrfti að lágmarka mönnun á næturvöktum og skera niður æfingar.

Áhrifin af áframhaldandi andvaraleysi stjórnvalda geta orðið íslensku samfélagi dýrkeypt.

Grein birtist fyrst í Fréttablaðinu, 16. ágúst 2018.