Hvað, ef og hefði

Hvað gerist þegar ríkisstjórnir springa? Það fer auðvitað eftir tímapunktinum en í tilfelli fráfarandi stjórnar er ljóst að gríðarmikil vinna fer til spillis. Síðustu mánuðir hafa verið hálfgert undirbúningstímabil fyrir komandi þingvetur. Það tekur tíma fyrir nýkjörna alþingismenn og ráðherra að setja sig inn í flókin mál, undirbúa frumvörp og átta sig á hvaða reglugerðum þarf að breyta. Alþingi og ráðuneyti eru formfastir vinnustaðir sem þurfa að aðlagast þegar skipt er um fólk í brúnni. Atvinnulífið er auðvitað ekki undanskilið í þessum efnum því þegar ríkisstjórnir springa eða miklir umhleypingar verða í kjölfar kosninga hægist á öllu, fólk forðast óþarfa áhættu og margt fer aftur á byrjunarreit. Þjóðin borgar brúsann því okkur hinum tókst ekki að klára verkefnið sem við tókum að okkur. Í lýðræðisríkjum er þessi endurnýjun auðvitað að mörgu leyti heilbrigð, en líklega ekki á eins árs fresti.

Ef við hefðum nú bara gert þetta svona og hitt hinsegin eru hugsanir sem lýsa ágætlega síðustu dögum. Hvernig hefðum við í ríkisstjórninni getað vandað okkur betur, átt í betri samskiptum, staðið þéttar saman? Það er auðvelt að vera vitur eftir á og lofa bót og betrun. Tækifærið er farið og kemur ekki aftur í sömu mynd.

„Hefði þetta mál ekki sprengt stjórnina þá hefði eitthvað annað gert það,“ er eitthvað sem ég hef heyrt oft á síðustu dögum. En það var þetta mál sem sprengdi stjórnina og við skulum ekki vanmeta það, heldur horfast í augu við það og draga af því lærdóm. Vantraustið sem ríkir til stjórnmálanna gerir það að verkum að þolinmæði almennings gagnvart eigin kjörnum fulltrúum er afskaplega takmörkuð. Að mínu mati er eina leiðin fram á við að opna stjórnkerfið eins og kostur er í öllum málaflokkum. Að sýna fram á hið margumtalaða gagnsæi á borði en ekki bara í orði. Í myrkrinu leynist tortryggnin og leiðin til að eyða henni er að hleypa ljósinu inn og leyfa birtunni að flæða. Þá kemur traustið.

Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðar­ráðherra. Grein birtist fyrst á visir.is 21. september 2017.