Hvernig losnum við undan verðtryggingunni?

Ungt fólk á Íslandi í dag tekur helst verðtryggð lán til húsnæðiskaupa vegna þess að þau bjóða upp á lægri og þar með viðráðanlegri afborganir um hver mánaðamót. Fæstir hafa með öðrum orðum efni á því að taka óverðtryggð lán og flestir þeirra sem taka þau gera það aðeins að hluta til. En verðtryggingin er samt óþolandi viðbót við þá alltof háu vexti sem við greiðum í dag af lánunum okkar og hvoru tveggja kemur til vegna óstöðugleika íslensku krónunnar. Það er sú rót vandans sem við þurfum að ráðast að.

Með því að festa krónuna við evru, t.d. með myntráði eins og við í Viðreisn tölum fyrir, náum við fram stöðugleikanum sem þarf til að lækka vexti og losna undan verðtryggingunni. Verðtryggingin yrði einfaldlega óþörf. Og það er miklu betri aðferðafræði en að boða „afnám“ illskásta lánakostsins fyrir ungt fólk, eins og sumir flokkar hafa talað fyrir. Þess vegna er baráttan fyrir breytingum sem stuðla að stöðugu lágvaxtaumhverfi án verðtryggingar eitt af meginverkefnum Viðreisnar á kjörtímabilinu. Að ná böndum um íslensku krónuna er lykillinn að árangri þar.

Stöðugur gjaldmiðill breytir nefnilega myndinni. Í Danmörku t.d. býr fólk ekki við háa vexti og verðtryggingu. Danska krónan er bundin evrunni á grundvelli samkomulags milli Seðlabanka Danmerkur og Seðlabanka Evrópu og sveiflast því algjörlega í takti við evruna. Þannig tryggja stjórnvöld Dönum og dönskum fyrirtækjum stöðugleika, lágt vaxtastig og líf án verðtryggingar. Þetta þýðir jafnframt að Danir geta eignast húsnæðið sitt án þess að borga það margfalt eins og við Íslendingar gerum. Á meðan við búum við sveiflukennda krónu verður verðtryggingin ill nauðsyn, bæði fyrir lánveitendur en ekki síður fyrir lántakendur sem vegna hennar njóta viðráðanlegra afborgana um hver mánaðamót. Þess vegna þarf að ráðast í nauðsynlegar breytingar á peningastefnu landsins sem fela í sér löngu tímabæra múlbindingu íslensku krónunnar, eins og við í Viðreisn höfum statt og stöðugt boðað.

Íslensk heimili eiga betra skilið en óbreytt ástand alltof hárra vaxta og verðtryggingar. Viðreisn vill meira og betra fyrir heimilin í landinu.

 

Höfundur er þingmaður og varaformaður Viðreisnar. Greinin birtist í Fréttablaðinu 28. ágúst 2017.