Jafnlaunavottun: Lykillinn að frjálsum vinnumarkaði

Þann 10. október s.l. kynnti Viðreisn fyrsta þingmál sitt; innleiðing skyldu til jafnlaunavottunar hjá öllum fyrirtækjum og stofnunum með 25 eða fleiri starfsmenn.

Þegar tekið hefur verið tillit til allra málefnalegra þátta sem skilja á milli starfsmanna; vinnustundir, menntun, reynsla og geta, stendur eftir að konur fá að meðaltali 10% lægri laun en karlar fyrir sama starf. Þetta er óásættanlegt og það sem meira er, þetta er ólöglegt.

Fáir vinnuveitendur gangast við því að greiða konum vísvitandi lægri laun en körlum og enn færri konur gangast við því að semja vitandi um 10% lægri laun en karlar. Launaleynd hefur verið afnumin en enn gætir upplýsingahalla á vinnumarkaði. Konur vita oft ekki að samstarfsmenn þeirra fái 10% hærri laun vegna happdrættis í vöggugjöf.  

Þann 10. október s.l. kynnti Viðreisn fyrsta þingmál sitt; innleiðing skyldu til jafnlaunavottunar hjá öllum fyrirtækjum og stofnunum með 25 eða fleiri starfsmenn.

Jafnlaunavottunin felst í því að fyrirtæki af þessari stærðargráðu munu upplýsa hver óútskýrður kynbundinn launamunur er á vinnustaðnum. Þetta verður gert samhliða skilum á ársreikningi. Með sama hætti og ársreikningi er ætlað að sýna að fyrirtæki hefur ekki brotið gegn reglum um reikningsskil yfir árið, er jafnlaunavottuninni ætlað að sýna að fyrirtæki hafi ekki brotið gegn lögum og greitt konum lægri laun fyrir það eitt að vera konur.

Ekki stendur til að stofna nýja eftirlitsstofnun eða ríkisbatterí, heldur munu fyrirtæki láta þriðja aðila framkvæma jafnlaunavottun samhliða árlegri úttekt á öðrum þáttum reksturs. Þessar upplýsingar verða síðan aðgengilegar starfsmönnum.

Fyrirtæki munu ekki þurfa að greiða starfsmönnum sömu laun óháð vinnuframlagi og hæfni. Málefnalegar ástæður kunna að vera fyrir hærri launum. Hins vegar verður fyrirtækjum og opinberum stofnunum gert að upplýsa hver launamunur er á milli kynjanna að teknu tilliti til allra málefnalegra sjónarmiða. Þeim verður gert að upplýsa ef konur fá minna greitt fyrir það eitt að vera konur.

Skylda til jafnlaunavottunar leiðir til þess að starfsmenn á frjálsum markaði hafi nauðsynlegar upplýsingar til þess að semja um rétt og sanngjörn laun. Markaður er enda ekki frjáls ef annar aðili samningssambands skortir nauðsynlegar upplýsingar til þess að rétt verð sé fundið.

Nú heyrast raddir um að þetta sé of mikil afskiptasemi af vinnumarkaði. Eru  þetta nákvæmlega sömu raddir og töluðu gegn fæðingarorlofinu á sínum tíma og öðrum aðgerðum sem hafa það að markmiði að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Svo konur njóti raunverulegs frelsis og geti með sanni keppt á frjálsum markaði verða þær að njóta jafnræðis. Til þess þarf gegnsæi og upplýsingar.

Við þurfum tæki fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir til þess að tryggja að þau mismuni ekki á grundvelli kynferðis. Það vill enda enginn greiða konum lægri laun fyrir það eitt að vera konur. Að minnsta kosti vill enginn að það spyrjist út.