Setjum hagsmuni íbúa í fyrsta sæti

Eftir aðeins örfáa daga verður kosið í sveitarstjórnir um land allt. Samfélagsmiðlar eru stútfullir af prúðbúnum frambjóðendum, slagorðin vel útpæld og loforðin alltumlykjandi. Það taka allir þátt í þessum leik, enda skiptir máli að ná til eyrna kjósenda og boða fagnaðarerindið. Þegar keppt er um atkvæði kjósenda er vinsælt að lofa öllu fögru, lasta andstæðinginn og kasta reyk­sprengjum til þess eins að afvegaleiða umræðuna.

Sveitarstjórnarmálin hafa líklega aldrei verið jafn þýðingarmikil og mikilvæg og nú. Fleiri verkefni og víðtækari eru nú á ábyrgð sveitarfélaga en áður og því skipta ákvarðanir sem teknar eru í sveitarstjórnum miklu máli fyrir daglegt líf fólks. Því þarf að vanda vel til verka og fulltrúar í sveitarstjórnum verða að vera meðvitaðir um þá miklu ábyrgð sem fylgir starfinu. Það skiptir því miklu máli að í sveitarstjórn veljist einstaklingar sem hafa skýr markmið og stefnu, þora að ráðast í breytingar, taka erfiðar ákvarðanir og klára málin. Þessir sömu sveitarstjórnarfulltrúar verða líka að geta átt í góðu samtali og samstarfi við þingið og þá fulltrúa sem þar sitja.

Viðreisn ætlar að tryggja að sú brú verði byggð og notuð í báðar áttir. Þó að Viðreisn sé að bjóða fram í fyrsta skipti í sveitarstjórnarkosningum höfum við þegar sýnt í verki að Viðreisn er stjórnmálaafl sem lætur verkin tala. Viðreisn vill frjálslyndar, jafnréttissinnaðar og lausnamiðaðar sveitarstjórnir um land allt. Við viljum að sveitarfélögin séu vel rekin og að þjónusta við íbúa sé í fyrirrúmi. Það eru víða tækifæri til að gera mun betur.

Efla þarf menntakerfið, laða hæft fólk til kennslu og tryggja dagvistunarúrræði frá því að fæðingarorlofi lýkur. Við þurfum að einfalda stjórnsýslu sveitarfélaganna og leggja stóraukna áherslu á rafræna þjónustu. Efla þarf almenningssamgöngur og greiða leið strætisvagna og einkabílsins með fjárfestingu í gatnakerfinu. Tryggja þarf ungu fólki húsnæði við hæfi, hvort heldur sem er með þéttingu byggðar eða þróun nýrra hverfa. Síðast en ekki síst má aldrei gleyma að stuðla að blómlegri og fjölbreyttri menningarstarfsemi sem auðgar andann og gerir lífið skemmtilegra.

Viðreisn setur hagsmuni íbúa í fyrsta sæti en ekki sérhagsmuni flokka eða hagsmunaafla. Þetta er einfalt – að almannahagsmunir gangi framar sérhagsmunum. Þannig mun Viðreisn einnig vinna í sveitarstjórnum.

Höfundar eru formaður og varaformaður Viðreisnar Grein birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. maí 2018.