Stefna Austurlistans og Viðreisnar í Múlaþingi
2026-2030

Meira fyrir Múlaþing

Börn og ungmenni eru í forgrunni. Við munum byggja upp Múlaþing þar sem tækifærin eru jöfn, óháð búsetu. Í því felst að styrkja tómstunda-, frístunda- og íþróttastarf, ásamt því að tryggja betri geðheilbrigðisþjónustu á öllum skólastigum. Þegar við styðjum betur við börnin okkar, skilar það sér í bættu samfélagi fyrir okkur öll. 

 

Stefnan byggir á fagmennsku, ábyrgum rekstri og auknum gæðum í allri þjónustu Múlaþings. 

 

Lífsgæði íbúa eru höfð að leiðarljósi í allri ákvarðanatöku. jöfnun tækifæra allra íbúa er samþætt allri grunnþjónustu, svo sem menntun, félagsþjónustu, þjónustu við eldri íbúa, frístundarstarfi, samgöngum og umhverfismálum.  

 

Múlaþing er mikilvægt efnahagssvæði og við eigum tilkall til sanngjarnar hlutdeildar í þeim verðmætum sem hér verða til, við munum beita okkur af festu fyrir því að ríkisstjórnin skili fjármunum til baka inn í okkar landshluta.

 

Austurlistinn og Viðreisn munu móta Múlaþing sem: 

  • Barnvænt og fjölskylduvænt samfélag
  • Samfélag þar sem íbúar og heimastjórnir hafa raunveruleg áhrif 
  • Sveitarfélag með öflugri grunnþjónustu og sterku velferðarkerfi 
  • Framsækið og sjálfbært sveitarfélag

Börn og ungmenni 

Við munum byggja upp fjölskylduvænt samfélag. Þetta gerum við með því að  jafna tækifæri barna með heildstæðum stuðningi án hindrana og góðri geðheilbrigðisþjónustu á öllum skólastigum. Öll börn eiga að geta fundið sér frístundastarf við sitt hæfi, sama hvort það er í íþróttum, skipulögðu félagsstarfi, eða einhverju allt öðru.

 

Áherslur

  • Jöfn tækifæri, óháð búsetu.
  • Efling forvarna, öryggis og velferðar hjá börnum og ungmennum 
  • Fleiri sérfræðingar í skólum 
  • Öflugt frístundastarf og frístundastyrkir sem tryggja jöfn tækifæri barna
  • Skilvirk úrræði á sviði geðheilbrigðis- og félagsþjónustu
  • Efling tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfs 
  • Aukinn stuðningur við börn með ólíka færni og af erlendum uppruna í leik og starfi 
  • Fleiri úrræði fyrir börn með sértækan vanda 
  • Áhersla á nauðsynlegar framkvæmdir við mannvirki sem þjóna framtíðar þörfum barna og ungmenna í öllum byggðakjörnum.

Velferð til framtíðar

Við vitum að velferðarþjónusta sem tryggir öryggi og virkni íbúa á öllum æviskeiðum er forsenda þess að Múlaþing sé heimili fólks fyrir lífstíð. Okkar megináhersla er að brúa bilið milli þess stuðnings sem þörf er á í dag og þeirra krafna sem framtíðin gerir. Fjölgun sérfræðinga á borð við þroska- og iðjuþjálfa og efld geðheilbrigðisþjónusta er fjárfesting í velferð íbúa áður en vandinn vex. Með þessu munum við tryggja að íbúar á öllum aldri fá viðeigandi þjónustu á réttum tíma. 

 

Áherslur

  • Snemmtæk íhlutun og aukinn stuðningur við þá sem glíma við geðrænan eða félagslegan vanda..
  • Efling grunnþjónustu á sviði velferðarmála er fjárfesting í framtíð. 

 

Eldra fólk  

  • Styrkjum starf og mikilvægi öldungaráðs.
  • Aukum fjölbreytni í afþreyingu og heilsueflingu eldra fólks.
  • Eflum heimaþjónustu aldraðra.
  • Tryggum uppbyggingu og fjármögnun hjúkrunarrýma í samstarfi við ríkið fyrir aldraða. 

 

Íbúar af erlendum uppruna

  • Íbúar Múlaþings af erlendum uppruna eru okkur mikilvægir, við viljum að öllum íbúum sveitarfélagsins vegni vel í störfum sínum og leik. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá fólk vilja setjast hér að og rækta sitt líf. Við viljum stuðla að jöfnum tækifærum í samfélaginu.
  • Við skiljum að góð kunnátta í móðurmáli er grundvöllur fyrir góðum árangri í íslensku.
  • Erlendir íbúar fái aðgengi  íslenskukennslu og fræðslu fyrir íbúa af erlendum uppruna.
  • Að Múlaþing veiti gott fordæmi sem atvinnurekandi og bjóði starfsfólki sínu að sinna íslensku námi á vinnutíma.
  • Við viljum auðvelda börnum af erlendum uppruna að fá kennslu í sínu móðurmáli

Fagleg stjórnsýsla og ábyrgur rekstur

Við ætlum að færa fókusinn á þau mál sem heyra undir sveitarstjórnina. Vönduð stjórnsýsla er undirstaða þess að Múlaþing geti veitt íbúum fyrsta flokks þjónustu. Við leggjum áherslu á faglegan og ábyrgan rekstur sveitarfélagsins. Þetta er forsenda þess að sveitarfélagið geti tekist á við áskoranir framtíðarinnar og byggt undir raunverulegan vöxt byggðanna. Nauðsynlegt er að ákvarðanir séu teknar eins nálægt þeim sem þær varða og hægt er. Heimastjórnirnar eru órjúfanlegur hluti þess að færa lýðræðislegt vald nær íbúunum.

 

Áherslur

  • Að klárað verði að opna bókhald Múlaþings fyrir íbúum til að auka gagnsæi og aðhald í rekstri.
  • Endurskoðun innkaupa til að ná 5-12% sparnaði
  • Endurskoðun rekstrar sveitarfélagsins, með það markmið að hagræða þar sem það á við
  • Notkun stafrænna lausna til að bæta innri ferla og þjónustu til íbúa 
  • Stuðla að forvörnum í viðhaldi

Tengjum Múlaþing 

Góðar samgöngur eru grundvöllur þess að Múlaþing geti náð lengra. Samgöngumál í Múlaþingi eru af tvennum toga, annars vegar eru það tengingarnar við aðra landshluta, en hins vegar eru það tengingarnar innan sveitarfélagsins.  Við munum ráðast í samgönguúrbætur á svæðinu, meðal annars með lagningu göngu- og hjólastíga, öflugri almenningssamgöngum, auknum snjómokstri og bættri gatnalýsingu. Við munum ekki láta okkar eftir liggja við að gæta hagsmuna fjórðungsins gagnvart stjórnvöldum þegar kemur að samgönguáætlun og lífæðinni sem er Egilsstaðaflugvöllur.

 

Áherslur 

  • Stöndum vörð um almenningssamgöngur og vinnum að bættum samgöngum milli byggðarkjarna
  • Öflug vetrarþjónusta fyrir alla byggðakjarna og sveitir. 
  • Öruggar leiðir barna í skóla og frístundir innan byggðakjarna.
  • Gætum að viðhaldi vega og bætum lýsingu.
  • Aukið samráð við Vegagerðina og fjárveitingarvald um viðhald vega í dreifbýli.
  • Fýsileikagreining og hönnun undirgangna á lykilstöðum með Vegagerðinni.

Mennt er máttur 

Við leggjum áherslu á öfluga skóla sem hlúa að nemendum og undirbúa þá fyrir framtíðina. Við munum styðjast við aðferðir sem hafa verið sannreyndar í verki hjá öðrum sveitarfélögum við að efla úrræði sem standa nemendum og kennurum til boða. Með öflugra skólakerfi munu börnin okkar standa betur að vígi til að sækja sér framhaldsmenntun og snúa svo aftur á heimaslóðir til að taka þátt í uppbyggingunni.

 

Áherslur

  • Samþætt stoðþjónusta á öllum skólastigum verður efld og innleidd af festu.
  • Öruggt og gott starfs- og námsumhverfi með vandaðri hljóðvist, lýsingu og loftgæðum.
  • Stuðningur við kennara og annað starfsfólk skóla til að sækja sér endumenntun.
  • Áhersla á fjölbreyttari leiðir til að mæta þörfum nemenda. 

Uppbygging í veldisvexti 

Við stöndum fyrir framsýnni uppbyggingu sem tryggir lífsgæði allra íbúa óháð aldri og búsetu. Það þarf að skapa aðstæður fyrir vöxt til framtíðar. Við munum beita okkur fyrir bættu skipulagi sem mætir þörfum Múlaþings í dag – og til framtíðar. Endurskoðun skipulags með sjálfbærni að leiðarljósi greiðir fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Hækkandi fasteignamat kallar á að álagningarprósentan lækki á móti. Við munum lækka álagninguna.

 

Áherslur 

  • Tryggjum að boðið sé upp á fjölbreytt íbúðarhúsnæði sem hentar þörfum allra lífsskeiða svo íbúar geti búið áfram í sínum byggðakjarna þegar lífstíllinn og þarfirnar breytast.
  • Lífsgæði íbúa, virðing fyrir náttúru og menningu er okkur leiðarljós í skipulagsmálum
  • Nýtum fólksfjöldaspár til að tryggja að hver byggðakjarni hafi þá þjónustu sem hann þarfnast.
  • Eflum miðbæ Egilsstaða sem samfélagslegan kjarna og aukum aðdráttarafl svæðisins sem þjónustukjarna Austurlands. 
  • Skilvirkari afgreiðsla skipulagsmála..
  • Aukið samráð við íbúa og hagsmunaaðila.
  • Þróum lóðir fyrir fólk og fyrirtæki

Atvinnulíf og nýsköpun 

Við munum byggja undir blómlegt atvinnulíf í Múlaþingi. Sveitarfélagið er öflugt efnahagssvæði sme býr að fjölmörgum tækifærum til sóknar. Bæta þarf rekstrarumhverfi fyrir starfsemi fyrirtækja af öllum stærðum með einföldun regluverks og skilvirkari stjórnsýslu. Við viljum vera aðlaðandi svæði fyrir rekstur sem leiðir af sér störf og afleidd störf.

 

Áherslur

  • Koma að framkvæmd nýrra verkefna á Seyðisfirði á sviði atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar. 
  • Koma á beinu áætlunarflugi frá Egilsstaðaflugvelli innan þriggja ára
  • Stuðla að þróun atvinnu sem nýtir orku úr héraði með umhverfisvænni nálgun. 
  • Styðja við uppbyggingu atvinnu í dreifbýli og leggja til verkefnisstjóra til að aðstoða aðila.
  • Að sveitarfélagið vinni að eflingu atvinnulífs með núverandi og nýjum hagsmunaaðilum svæðisins að nýjum fjárfestingum, meðal annars með ráðningu verkefnastjóra atvinnumála
  • Bæta rekstrarumhverfi fyrir starfsemi af öllum stærðum með einföldun regluverks og skilvirkni stjórnsýslu 

Loftslagsmál, sjálfbærni og umhverfisvernd

Við gerum Múlaþing grænna í raunhæfum skrefum og ábyrgri nýtingu á náttúruperlum okkar í þágu íbúa og framtíðarkynslóða.

 

Áherslur

  • Sveitarfélagið verði kolefnishlutlaust í rekstri fyrir 2035.
  • Efli vinnu og stuðning við möguleg hringrásarhagkerfi, frekari flokkun og endurvinnslu á svæðinu.
  • Leggjum áherslu á að vernda náttúruperlur og byggja upp aðgengi til þeirra af ábyrgð.
  • Nýta hreina orku og umhverfisvænar lausnir til verðmætasköpunar og lífsgæða  á svæðinu.

Lokaorð

Við ætlum að byggja upp framsækið og fjölskylduvænt samfélag þar sem fagmennska, ábyrgur rekstur og jöfnun tækifæra er höfð að leiðarljósi í allri þjónustu. Með íbúana í forgrunni og skýra framtíðarsýn munum við efla samfélagið okkar svo það verði öflugur og sjálfbær valkostur fyrir öll. Við bjóðum ykkur með í þá vegferð að skapa betra Múlaþing fyrir okkur öll og komandi kynslóðir. Við viljum meira fyrir Múlaþing.